HVAÐ GERI ÉG?
Hönnun snýst meira og minna um að koma skilaboðum á hnitmiðaðan hátt til þeirra sem verið er að tala til. Ég hef starfað við grafíska hönnun og auglýsingagerð í rúmlega þrjátíu ár. Útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1983 og stundaði síðan framhaldsnám í Ontario College of Art(nú Ontario College of Art and Design) frá 1984-86. Starfaði lengst af á Íslensku auglýsingastofunni þar sem ég var lengi vel hönnunarstjóri. Frá árinu 1999 hef ég síðan rekið mína eigin auglýsingastofu, Skaparann auglýsingastofu. Sérsvið mitt má segja að sé hönnun vörumerkja og allskyns teiknivinna. Hef hannað ógrynni vörumerkja, auglýsinga og bæklinga. Á síðari árum hef ég starfað með sterkum aðilum á rafræna markaðnum, vef- og margmiðlunarhönnuðum. Ég er vel tengdur á prentmarkaðinum og veiti þjónustu í prentmiðlun og umsjón verka. Síðast en ekki síst kann ég ýmis ráð til að ná betur til viðskiptavina og auka sölu þeirra. Hafðu samband og sjáðu hvort við getum ekki unnið saman.
HVER ER MAÐURINN?
Persónuleg og lipur þjónusta er það sem hefur ávallt reynst viðskiptavinum Skaparans happadrýgst. Oft er stuttur tími, lítið efni, texti og myndir ekki á lausu og þú þarft að koma einhverjum mikilvægum skilaboðum til þinna viðskiptavina. Þá erum við rétti kosturinn. Við höfum mikla reynslu, gnótt af góðum hugmyndum og góða þjónustu. Okkur þykir skemmtilegast að fá að láta hugann reika og koma með skýra og hnitmiðaða hugmynd að auglýsingu, bækling, myndskreytingum, vörumerkjum, fyrirtækjaútliti, ímynd, umbúðum, vefborðum, vef, sýningarbása eða bókahönnun. Við erum í góðum tengslum við prentiðnaðinn og getum auðveldlega séð um umsjón allskyns prentgripa. Allt frá litlum verkefnum til stórra. Aðalatriðið er að þú sem viðskiptavinur finnir þig í viðskiptum við okkur, við náum að uppfylla þínar þarfir og væntingar – og verkefnin sem þú lætur okkur vinna fyrir þig skapi aukna sölu og hagnað fyrir þitt fyrirtæki.
HUGMYNDAVINNA
VÖRUMERKI
AUGLÝSINGAGERÐ
MYNDSKREYTINGAR
SMÁATRIÐIN
ERU EKKI SMÁATRIÐI
ÞAU ERUHÖNNUNIN